Mánudagurinn 27. júní 2022

Bretland: Hnífar á lofti í Íhalds­flokknum- og beinast að Osborne

Gagnrýnendur segja fjármála­ráðherrann ekki skilja millistéttina


31. mars 2013 klukkan 08:40
George Osborne

The Sunday Telegraph birtir í dag frétt þess efnis, að hnífarnir séu á lofti í innsta kjarna brezka Íhaldsflokksins og beinist að George Osborne fjármálaráðherra. „George er vandamálið“ segir lykilmaður í Íhaldsflokknum sem talar undir nafnleynd. Í umfjöllun blaðsins kemur fram, að innan flokksins hafi menn áhyggjur af því að fjármálaráðherrann skilji ekki millistéttina, lífsgildi hennar og fjárhagslega baráttu.

Síðustu fjárlög hafi í raun orðið þungbær fyrir mæður, sem hafi kosið að starfa heima við og hafi ekki veitt hjónabandi neinn stuðning í skattamálum. Til viðbótar hafi verið gerðar breytingar á barnabótum, sem hafi verið íþyngjandi fyrir fjölskyldur, þar sem fyrirvinna sé aðeins ein.

Gagnrýnendur ráðherrans telja einnig að aðgerðir hans í húsnæðismálum séu líklegri til að búa til verðbólu á fasteignamarkaði en að stuðla að auknum hagvexti.

Margir áhrifamenn í Íhaldsflokknum vilja að William Hague, utanríkisráðherra, taki við embætti fjármálaráðherra en Sunday Telegraph bendir á, að það yrði mikil ákvörðun fyrir David Cameron, þar sem Osborne sé nánasti pólitíski samherji hans.

Þá kemur fram í frétt blaðsins að úrslit sveitarstjórnakosninga í vor geti haft mikil áhrif á framgang mála inna Íhaldsflokksins.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS