Föstudagurinn 22. janúar 2021

Cyprus Airways á barmi gjaldþrots


4. apríl 2013 klukkan 19:06

Líkur eru taldar á að Cyprus Airways, flugfélag Kýpur, leggi upp laupana vegna minni ríkisstuðnings segir í blaðinu Fileleftheros á Kýpur fimmtudaginn 4. apríl. Samgönguráðherra landsins hefur lagt fram tillögu um þrjár leiðir: lokun félagsins strax, lokun að lokinni sumarvertíðinni eða óbreytt framhald.

Yrði ákveðið að halda starfseminni áfram mundi það krefjast 82,2 milljóna evru ríkisaðstoðar á næstu þremur árum auk þess sem starfsmönnum yrði fækkað um 560, laun yrðu lækkuð og flugvélum fækkað.

Óvíst er um afstöðu þríeykisins, neyðarlánveitendanna, til tillagna ráðherrans. Frá 2011 hefur ríkt óvissa um framtíð Cyprus Airways. Ríkisstjórn Kýpur hefur greitt 20 milljónir evra til félagsins ár hvert til að halda flugvélum þess á lofti. Styrkirnir hafa verið fóðraðir með þeim rökum að vélar flugfélagsins verði að taka á sig krók vegna þess að þeim sé bannað að fljúga yfir tyrkneskt landsvæði.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS