Mánudagurinn 27. júní 2022

Grikkland: 120.000 sérmenntað fólk hefur horfið til starfa í öðrum löndum


10. apríl 2013 klukkan 17:23

Atvinnuleysið í Grikklandi og efnahagssamdrátturinn hefur ýtt undir brottflutning menntaðs fólks frá landinu. Ungir vísindamenn hverfa til starfa í öðrum löndum. Nýleg rannsókn í háskólanum í Þessalóníki leiðir í ljós að meira en 120.000 sérmenntað fólk hefur yfirgefið Grikkland frá því að fjármálakreppan hófst árið 2010.

Hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk á sjúkrahúsi mótmælir í grísku borginni Þessalóníki.

Læknar, verkfræðingar, tölvu- og upplýsingatæknifræðingar eiga auk vísindamanna æ erfiðara með að finna starf við sitt hæfi vegna minni útgjalda til heilbrigðismála eða annarra opinberra þátta.

„Fjöldi ungra vísindamanna sem flytur af landi brott hefur náð 10% af þeim fjölda sem starfað hefur í landinu, og þetta er mjög hátt,“ sagði Lois Lambrianides, stjórnandi rannsóknarinnar, við Aþenu-blaðið Ethnos þrijudaginn 9. apríl.

Lambrianides er prófessor í hagfræðilegri landafræði við Þessalóníki-háskóla. Hún segir að einkum fari hið sérmenntaða fólk til annarra Evrópulanda, setjist að í stórborgun og hefji störf hjá einkafyrirtækjum. Um helmingur þeirra hafi fjölmargar gráður frá einhverjum af 100 bestu háskólum heims.

Hvergi innan Evrópusambandsins er atvinnuleysi meira en í Grikklandi, rétt rúmlega 26%. Nú er samdráttur í efnahag landsins sjötta árið í röð, hann má að hluta rekja til hinna hörðu aðhaldsaðgerða með krafist hefur verið að stjórnvöld landsins framkvæmi. Enn er krafist af ESB, Seðlabanka Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að opinberum störfum í Grikklandi fækki um 150.000 fram til ársins 2015.

Heimild: Spiegel Online

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS