Meiri gagnkvæm upplýsingagjöf skattayfirvalda í einstökum ríkjum
Angela Merkel, kanslari Þýzkalands og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands ræddu umbætur á sameiginlega markaðnum á fundi sínum í Schloss Meseberg, kastala frá 18. öld, sem er staðsettur skammt frá Berlín að því er fram kemur í Sunday Telegraph. Athygli vakti að Cameron-hjónunum var boðið að taka börn sín þrjú með og gista í kastalanum yfir nótt. Börnin voru leyst út með gjöfum.
Blaðið bendir á að Cameron hafi snemma á þessu ári sett fram hugmyndir um að Bretar endursemji um aðild sína að Evrópusambandinu og að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um afstöðuna til ESB á árinu 2017.
Í frétt blaðsins kemur fram, að Merkel og Cameron hafi verið sammála um mikilvægi þess að Evrópa verði samkeppnishæfari og sveigjanlegri. Þau hafi rætt frekara samstarf í aðdraganda ráðherrafunda í maí og júní og um leiðir til að ná skjótari árangri í viðskiptasamningum á milli ESB og annarra þjóða.
Þá ræddu þau leiðir til, að tryggja skattgreiðslur einstaklinga og fyrirtækja, sem greiði ekki sanngjarnan hlut til samfélagsins og aðgerðir G-8 ríkja í því sambandi. Ennfremur um meiri gagnkvæma upplýsingamiðlun skattayfirvalda í einstökum ríkjum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.