Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Wolfgang Schäuble: Virkt banka­samband ESB krefst sáttmálabreytinga


14. apríl 2013 klukkan 12:51

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði að loknum fundi fjármálaráðherra ESB-ríkjanna í Dublin föstudaginn 12. apríl að ekki yrði komið á fót virku bankasambandi innan ESB nema sáttmálum sambandsins yrði breytt.

Wolfgang Schäuble

Frá þessu er skýrt í The Sunday Telegraph 14. apríl og haft eftir Schäuble: „Bankasamband kemur aðeins að gagni séu einnig fyrir hendi reglur um uppstokkun og slit banka. Viljum við að evrópskar stofnanir komi þar við sögu er nauðsynlegt að breyta sáttmálanum.“

Litið er á bankasamband sem lykilstofnun í því skyni að skapa stöðugleika á evrusvæðinu og losa skattgreiðendur undan skyldu til að standa undir kostnaði við björgun banka. Schäuble hefur lýst efasemdum um bankasambandið og sagt að ekki sé unnt að stíga nein skref í þessa átt á „vafasömum lagagrundvelli“.

Hann sagði einnig að breyta yrði lögum ef grípa ætti til samræmdra aðgerða í þágu fallinna banka. Bent er á að það taki langan tíma og sé erfiðleikum háð að breyta Lissabon-sáttmálanum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS