Panicos Demetriades, seðlabankastjóri Kýpur, segir sunnudaginn 14. apríl að hann vilji vinna með ríkisstjórn landsins að því að leiða þjóðina úr efnahagskreppunni svo framarlega sem hún virði sjálfstæði seðlabankans. Þetta segir Reuters-fréttastofan.
Átökin milli seðlabankastjórans og mið-hægristjórnarinnar á Kýpur hafa harnað síðustu daga og þrýstingur hefur aukist á bankastjórann. Ríkisstjórnin vill að hann segi af sér vegna þess hvernig hann hefur haldið á efnahagskreppunni.
Þing Kýpur hefur hafið rannsókn á störfum Demetriades samtímis og ríkisstjórnin dró tilnefningu á manni í bankastjórastarfið í stað hans til baka. Þrír lykilstjórnendur seðlabankans hafa sagt af sér störfum.
Mario Draghi, forseti bankastjórnar Seðlabanka Evrópu, hefur blandað sér í deilurnar á Kýpur og tekið málstað seðlabankastjórans. Hann hefur ritað forseta Kýpur bréf og sagt að brottrekstur seðlabankastjórans mundi draga dilk á eftir sér. Málið muni fara fyrir ESB-dómstólinn.
Reuters segir að Demetriades hafi lýst vilja til samstarfs við lýðræðislegar stofnanir á Kýpur til að bæta hag þjóðarinnar enda njóti sjálfstæði seðlabankans virðingar.
ESB-lög segja að ekki sé unnt að reka seðlabankastjóra nema hann geti ekki lengur sinnt skyldum sínum eða hafi brotið alvarlega af sér.
Þingmenn á Kýpur vilja að rannsakað sé hvort Demetriades hafi látið í té nægar upplýsingar um stóra lánveitendur.
Nú hefur sú breyting orðið á stjórn Seðlabanka Kýpur að fækkað hefur í henni úr sex mönnum í tvo.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.