Króatar kusu í fyrsta sinn 12 fulltrúa sína á ESB-þingið sunnudaginn 14. apríl en þeir verða aðilar að Evrópusambandinu 1. júlí 2013. Þátttaka var lítil í kosningunum, tæp 21%, og er það talið til marks um að áhuginn á evrunni sé lítill og minnkandi meðal þjóðarinnar. Aldrei hafa færri Króatar farið á kjörstað í kosningum.
Þingmennirnir munu sitja á ESB-þinginu út þetta kjörtímabil þess fram á sumar 2014. Landið allt var eitt kjördæmi í kosningunum og var um hlutfallskosningu að ræða.
Í skoðanakönnunum kom fram að jafnaðarmannaflokkurinn sem fer með stjórn landsins mundi vinna en niðurstaðan varð á þann veg að bandalag mið-hægri flokka vann nauman sigur.
Skoðanakannanir sýna að um þessar mundir er rétt rúmur helmingur Króata hlynntur aðild að ESB. Fréttaskýrendur segja að að áhuginn á að ganga í ESB minnki vegna efnahagsvanda á heimavelli og fréttanna af því sem er að gerast í evru-löndunum sem glíma við efnahagskreppu.
Alls sitja 754 á ESB-þinginu og eru þeir fulltrúar 500 milljóna manna.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.