Miðvikudagurinn 29. júní 2022

Frakkland: Rannsókn hafin á ásökunum um fjárstuðning Gaddafis við Sarkozy


20. apríl 2013 klukkan 17:45

Franskir saksóknarar rannsaka nú hvort eitthvað sé hæft í ásökunum um að Nicolas Sarkozy, fyrrv. forseti Frakklands, hafi fengið miklar fúlgur í styrk frá Líbíu í forsetkosningabaráttunni 2007. Í síðasta mánuði var hafin formleg sakamálarannsókn á Sarkozy vegna ásakana um að hann hefði þegið ólögmætan fjárstuðning frá auðugustu konu Frakklands í kosningabaráttunni. Sarkozy neitar öllum þessum ásökunum.

Nicolas Sarkozy

Nicolas Sarkozy beitti sér mest allra þjóðarleiðtoga fyrir því árið 2011 að beitt var hervaldi undir forystu NATO til að koma Muammar Gaddafi, einræðisherra í Líbíu, frá völdum. Á þeim tíma sagði Saif al-Isam, sonur Gaddafis, að Sarkozy hefði fengið milljónir evra frá föður sínum í kosningabaráttunni.

Ziad Takieddine, fésýslumaður frá Líbanon, endurtók þessar ásakanir í desember 2012. Hann hefur lengi annast milligöngu í samskiptum Frakka við þjóðir í Mið-Austurlöndum. Fésýslumaðurinn segist búa yfir skriflegum sönnunargögnum um að kosningasjóður Sarkozys hafi notið góðs af „verulegum“ fjárhæðum frá Trípóli, höfuðborg Líbíu, og greiddar hafi verið 50 milljónir evra eftir að Sarkozy varð forseti.

Muammar Gaddafi var gestur í Frakklandi árið 2007 og var hann borinn á höndum stjórnvalda, hann fékk meira að segja að slá upp tjaldi rétt við forsetahöllina í hjarta Parísar.

Sarkozy hefur staðfastlega borið af sér allar ásakanir í þessa veru og minnt á að hann hafi lagt sig mest fram um valdbeitingu til að bola Gaddafi frá völdum.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS