Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna koma saman í Brussel þriðjudaginn 23. apríl til að skiptast á skoðunum um brottför herafla undir merkjum bandalagsins frá Afganistan, átökin í Sýrlandi og spennuna á Kóreuskaga.
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, sagði við upphaf fundarins: „Við sjáum öll að ástandið versnar í Sýrlandi. Við getum ekki litið fram hjá hættunni af því að það hafi áhrif í nágrannaríkjum og kalli þar með á viðbúnað af hálfu bandalagsins.“
Undir stjórn NATO eru hollenskar, þýskar og bandarískar Patriot-flaugar í Tyrklandi sem á land að Sýrlandi. Hlutverk þeirra er að sporna gegn sprengjuárásum á Tyrkland.
Fyrir ráðherrafundinn hvatti Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, Rússa til að láta að sér kveða í þágu friðar í Sýrlandi og draga úr hótunum Norður-Kóreumanna.
Ætlunin er að liðsafli undir merkjum NATO hverfi frá Afganistan árið 2014 eftir að hafa þjálfað stjórnarherafla í Afgangistan. Þá er ætlun NATO að halda úti hópum ráðgjafa og þjálfara í Afganistan eftir að heraflinn hefur verið kallaður á brott.
John Kerry kemur nú í fyrsta sinn á fund í höfuðstöðvum NATO síðan hann varð utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.