Meirihluti Þjóðverja ber enn traust til evrunnar en rúmlega þriðjungur fagnar að til sögunnar komi stjórnmálaflokkur sem lýsi andstöðu við hina sameiginlegu mynt. Þetta kemur fram í könnun sem var birt föstudaginn 3. maí.
Um 76% Þjóðverja telja að evran muni standast áraunina að þessu sinni og hún verði enn við lýði eftir nokkur ár. Svipað hlutfall telur að góð áform og hugmyndir séu að baki evrunni en þeim hafi verið hrundið illa í framkvæmd.
Niðurstöður könnunarinnar sem gerð var meðal 1006 manna mánudag 29. og þriðjudag 30. apríl voru birtar í ARD-sjónvarpsstöðinni.
Rétt rúmur þriðjungur aðspurðra taldi Þjóðverja ekki þarfnast evrunnar, 58% töldu hins vegar að ríkisstjórnin ætti að gera allt í sínu valdi til að bjarga evrunni.
Alls 37% töldu gott að flokkur gagnrýninn á evruna, eins nýi flokkurinn AfD, fengi sæti Í Bundestag, neðri deild þýska þingsins, 58% lýstu andstöðu við að slíkur flokkur kæmist á þing.
AfD vill kasta evrunni fyrir róða og innleiða þýska markið að nýju. Flokkurinn vill „skipulagða upplausn“ evru-samstarfsins.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.