Skoðuðu skjöl og bækur-Norðurlönd mótmæla
Norðurlandaráð rekur upplýsingaskrifstofu í Kaliningrad, sem er hluti af Rússlandi en staðsett á milli Pólands og Litháen. Í síðustu viku gerðu fulltrúar rússneskra stjórnvalda húsrannsókn á þessari skrifstofu að því er fram kemur í Barents Observer. Skrifstofan er rekin á grundvelli samnings á milli Norðurlandaráðs og Rússlands. Eftirlitsaðilar fóru í gegnum skjöl á skrifstofunni og skoðuð bækur sérstaklega.
Í gær mómæltu Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía og aðrir utanríkisráðherra Norðurlandanna þessu framferði harðlega. Þetta kom fram á sameiginlegum blaðamannafundi sem Bildt efndi til í Stokkhólmi ásamt Espen Barth-Eide, utanríkisráðherra Noregs og Erkki Tuomiojan, utanríkisráðherra Finnlands.
Aðgerðirnar á upplýsingaskrifstofu Norðurlandaráðs í Kaliningrad eru þáttur í aðgerðum Rússa gagnvart óháðum félagasamtökum, sem njóta fjárstyrks erlendis frá.
Bildt sagði að Norðurlandaþjóðirnar mundu sameiginlega mótmæla við utanríkisráðuneytið í Moskvu í næstu viku. Fulltrúar allra sendráða Norðurlanda í Moskvu mundu fara sameiginlega á fund í utanríkisráðuneytinu þar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.