Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Air India: Flogið á sjálfstýringu á meðan flugmenn sofa


4. maí 2013 klukkan 12:01

Tveimur flugmönnum og tveimur flugfreyjum hjá Air India hefur verið sagt upp störfum eftir að hafa brotið gróflega gegn flugöryggisreglum.

Á flugleiðinni frá Bangkok til Delhi hinn 12. apríl ákváðu tveir flugmenn að setja á sjálfstýringu í vélinni og fá sér blund á viðskiptafarrými vélarinnar.

Áður hafði flugstjórinn notað nokkrar mínútur til að kenna flugfreyjunum hvernig þær ættu að stjórna flugvélinni.

Það lá við stórslysi. Eftir um 40 mínútur aftengdi önnur flugfreyjanna sjálfstýringuna og þá tók vélin að lækka flugið. Þriðja flugfreyjan hljóp til og vakti flugmennina sem sneru með hraði aftur í stjórnklefann.

Flugmennirnir náðu stjórn á vélinni og enginn af farþegunum 166 varð fyrir tjóni.

Heimildarmaður innan Air India segir við The Times of India að flugliðarnir hafi „þverbrotið flugöryggisreglur“. Hann segir: „Það er grundvallarregla að tryggt sé að flugmaður sé í stjórnklefanum bregði flugstjórinn sér frá eða er ekki fær um að stjórna ferðinni.“

Flugvélin var í 10 km hæð þegar atvikið gerðist.

.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS