Föstudagurinn 22. janúar 2021

Írland: 308.000 flust á brott - rúmlega helmingur ungs fólks íhugar brottflutning


10. maí 2013 klukkan 11:50

Alls hafa 308.000 Írar leitað til útlanda eftir vinnu á undanförnum fjórum árum og helmingur ungs fólks undir 24 ára aldri hefur velt fyrir sér að flytja úr landi. Frá þessu segir í blaðinu The Irish Independent föstudaginn 10. maí og þar er einnig vísað til nýrrar skýrslu sem segir að margir brottfluttir vilji snúa heim að nýju en líklegt sé að þeir fái „öfugt menningaráfall“ við heimkomuna og fóti sig ekki.

Marie Claire McAleer við National Youth Council of Ireland (NYCI), æskulýðsráð Írlands, hefur í fyrsta sinn kannað hið mikla tilfinningaálag sem leggst á þúsundir írskra fjölskyldna vegna brottflutnings í leit að störfum.

„Afleiðing þess að tapa svo miklum fjölda af ungu fólki okkar mun koma í ljós,“ segir í skýrslunni. „Ekki er neinn vafi á að áhrifin af brottflutningi menntaðs fólks og af því að tapa verulegum hluta af unga fólkinu leiða til þess að skarð verður þegar leitað er eftir þjálfuðu, vel menntuðu vinnuafli og einnig myndast skarð í heila kynslóð Íra.“

Í skýrslunni er ríkisstjórnin hvött til að leggja þeim meira lið sem ella huga á brottflutning og að sérstökum ráðherra verði falið að fjalla um brottflutning.

Í skýrslunni er vísað til rannsókna sem reistar eru á viðtölum við rúmlega 1.000 unga Íra sem flutt hafa til Kanada og Bretlands á síðustu tveimur árum.

Í könnuninni kemur einnig fram að rúmlega 50% á aldrinum 18 til 24 ára hafa íhugað að flytja á brott og um 40% á aldrinum 25 til 40 ára.

Af þeim 308.000 sem hafa yfirgefið Írland undandarin fjögur ár eru 41% á aldrinum 15 til 24 ára.

Um 7% þeirra sem eru eldri en 65 ára hafa einnig velt fyrir sér að flytja til annars lands, þeirra á meðal eru afar og ömmur sem vilja ekki slíta tengsl við unga afkomendur sína.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS