Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Bretland: Uppnám í þing­flokki Íhaldsmanna vegna stefnuræðu drottningar

Flytja tillögu þar sem harmað er að ekki var fjallað um þjóðar­atkvæða­greiðslu í ræðunni


12. maí 2013 klukkan 08:23

Uppnám er í þingflokki brezka Íhaldsflokksins vegna þess, að í stefnuræðu drottningar á þingi fyrir skömmu var ekki getið um ráðstafanir til þess að greiða fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðu Breta til Evrópusambandsins. Af þeim sökum er hópur þingmanna að undirbúa tillögu þar sem þetta verður harmað (express regret). Downingstræti 10 hvetur ráðherra til þess að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna, sem Sunday Telegraph segir að engin fordæmi séu fyrir þar sem í því felist að ráðherra greiði ekki atkvæði með stefnuræðu drottningar. Í þeirri ræðu er gerð grein fyrir þeim löggjafartillögum, sem ríkisstjórnin muni leggja fram á næsta þingi.

Blaðið segir að afstaða ráðherra og aðstoðarráðherra verði metin sem spurning um stuðning við ríkisstjórnina. Það yrði vandræðalegt fyrir Cameron ef einhver úr þeim hópi greiddi atkvæði með slíkri tillögu. Ónafngreindur ráðherra sagði við Sunday Telegraph að málið sýndi pólitíska veikleika Camerons. Hann gæti ekki krafizt þess af ráðherrum sínum að þeir greiddu atkvæði gegn tillögunni, þar sem sumir þeirra mundu þá ganga út.

Forsyth, lávarður, sem var náinn samstarfsmaður Thatcher og áhrifamaður á hægri væng Íhaldsflokksins hefur nú gengið í lið með Nigel Lawson og Michael Portillo, sem vilja brottför Bretlands úr ESB. Hins vegar skrifar annar áhrifamaður í flokknum Michael Heseltine, sem nú er áttræður að aldri, grein í Financial Times, þar sem hann hvetur Bretland til þess að halda áfram innan Evrópusambandsins. Heseltine hefur lengi verið sterkur stuðningsmaður aðildar Bretlands að ESB.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS