Háttsettur kaþólskur biskup á Spáni, Braulio Rodriguez, hvetur til stefnubreytingar í viðbrögðum evruríkja við skuldakreppunni til þess að koma í veg fyrir þjóðfélagslegt hrun (social collapse) og segir að vaxandi atvinnuleysi á Spáni og annars staðar í Suður Evrópu sé orðið „mjög hættulegt“. Biskupinn segir að breyta verði um stefnu ella muni pólitíska kerfið í þessum löndum hrynja. Hann segir í samtali við Sunday Telegraph að atvinnuleysið sé komið á óheyrilegt stig og aðhaldsaðgerðir sýnist ekki skila árangri.
Blaðið bendir á að kaþólskir biskupar í Evrópu hafi leitt fjármálakreppuna hjá sér en biskupinn segir ekki lengur hægt að halda áfram á sömu braut. „Vatikanið hefur alltaf stutt Evrópu en þá er átt við Evrópu sem stendur saman og ríkin hjálpa hvert öðru, ekki Evrópu kola og stáls. Hvort þetta er mögulegt byggist á Þýzkalandi og Angelu Merkel, kanslara“, segir biskupinn.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.