Mánudagurinn 1. mars 2021

Berlingske: Ný bók í Þýzkalandi afhjúpar pólitíska fortíð þekktra stjórnmálamanna o.fl.


13. maí 2013 klukkan 10:27

Ný bók sem út er komin í Þýzkalandi afhjúpar að sögn Berlingske Tidende í morgun meiri aðild fyrrum meðlima þýzka nazistaflokksins af þýzkum stjórnmálum, en áður hefur verið vitað um. Í bókinni, sem skrifuð er af Malte Herwig, blaðamanni, sem hefur starfað bæði á Der Spiegel og nú á Suddeutsche Zeitung er því haldið fram, að Hans Dietrich Genscher, sem lengi var utanríkisráðherra Þýzkalands og varakanslari úr flokki Frjálsra demókrata hafi verið á skrá sem meðlimur nazistaflokksins. Hið sama eigi við um þekktan rithöfund Martin Walsers, sem var mikill stuðningsmaður Willy Brandts en færðist svo enn lengra til vinstri.

Berlingske minnir á, að upplýst hafi verið að rithöfundurinn Gunter Grass hafi leynt upplýsingum um að hann hafi verið meðlimur SS á tímum Hitlers og segir að það mál hafi orðið til þess að Martin Herwig hafi farið að leita í spjaldskrám nazistaflokksins.

Þegar nafn Genschers var nefnt í þessu samhengi 1994 hélt ráðherrann fyrrverandi því fram, að hann hefði enga hugmynd haft um að nafn hans hafi verið þar en Herwig segir að það sé léleg skýring. Hið sama hafi gerzt þegar hann hafi sjálfur hringt í Martin Walser árið 2007, hann hafi sagt að honum hafi ekki verið kunnugt um að nafn hans væri þar að finna.

Í bók Malte Herwig er því haldið fram að ráðandi öfl í þýzkum stjórnmálum hafi vitandi vits leynt fortíð margra stjórnmálamanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS