Mikill þrýstingur á lífskjör og menningu íbúa Norðurslóða segir varaforseti norska Samaráðsins
Norðurslóðafundur fólksins hófst í Kiruna í Svíþjóð í gær í aðdraganda ráðherrafundar Norðurskautsráðsins, sem verður þar síðar í þessari viku. Á fundinum sagði Laila Susanne Vars, varaforseti norska Samaþingsins að allur heimurinn fylgdist nú með því sem gerðist á heimskautasvæðunum. Hún sagði að þær miklu breytingar, sem þar væru að verða, bráðnun íssins, hlýjara loftslag og iðnvæðing Norðurslóða, sem stæði fyrir dyrum þýddi aukinn þrýsting á íbúa þessara svæða, lífsafkomu þeirra og menningu þeirra ólíku þjóðflokka, sem hafa byggt þau. Samskipti þessara hópa við ríkisstjórnir og alþjóðlegar stofnanir væru hins vegar flókin og þeir hafi ekki atkvæðisrétt í stofnunum á borð við Norðurskautsráðið.
Ráð Sama og Samtök ólíkra þjóðflokka Norðursins í Rússlandi eiga fasta áheyrnarfulltrúa á fundum Norðurskautsráðsins. Þeir geta tekið þátt í umræðum og hafa tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.
Fundinum lýkur síðdegis í dag, mánudag.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.