Laugardagurinn 16. janúar 2021

OECD: Niðurskurður kemur verst við ungt fólk og fátækt fólk


15. maí 2013 klukkan 07:14

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) segir að niðurskurður komi verst niður á ungu fólki og fátæku fólki. Guardian segir frá skýrslu um Bretland, sem sýni, að tekjumunur hafi verið nokkuð jafn á árunum 1995-2007 en hafi síðan aukizt mjög á fyrstu þremur árum fjármálakreppunnar. Ný greining sýni að ráðstöfunartekjur 10% af tekjuhæstu heimilum í Bretlandi hafi á árinu 2010 verið að meðaltali um 53.600 pund eða um 10 milljónir íslenzkra króna og jafnframt tífallt hærri en ráðstöfunartekjur 10% tekjulægstu heimila, sem hafi komizt af á 5300 pundum eða um einni milljón króna, Fimm árum áður hafi hlutfallið verið 9 á móti einum. Í þremur löndum Evrópu var staðan verri en í Bretland en það eru Grikkland, Ítalía og Spánn.

OECD segir að áhyggjur af tekjumun eigi eftir að vaxa eftir því sem áhrif niðurskurðar komi betur fram. Sérfræðingur OECD segir að aðgerðir samsteypustjórnar Íhaldsflokksins og Frjálslyndra í Bretlandi komi ver við fátæka fólkið en aðra.

Í þessari skýrslu kemur fram, að í þremur löndum Evrópu hafi ungu fólki farnast ver en í Bretlandi. Það séu Eistland, Spánn og Tyrkland.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS