Kveikt í 21 bíl á innan við klukkustund-lögregla eltir brennuvarga í þyrlum
Síðustu sólarhringa hafa hægri sinnaðir öfgamenn látið til sín taka í Stokkhólmi að því er fram kemur í frétt í Financial Times. Í einni af útborgum Stokkhólms gerðu um 50 slíkir aðsúg að innflytjendum. Lögreglan upplýsti Aftonbladet um að þessi hópur hefði undirbúið „hjálp“ við lögreglu á samskiptasíðum. Dagens Nyheter segir að þurft hafi tíu lögreglubíla til að koma í veg fyrir að nýnazistar réðust á fólk. Enginn var handtekinn.
Á síðu, sem „árvakrir“ (vigilantes) halda út á Facebook segir að stórir hópar Svía í suðurhluta Stokkhólms og minni hópar á götum væru tilbúnir til að halda uppi lögum og reglu. Svíþjóðar demókratar, sem hafa nú um 10% fylgi skv. könnunum krefjast harðra aðgerða.
Sænskir þegnar en aðfluttir hafa lofað að stilla saman strengi sína til að halda hægri öfgamönnum frá hverfunum.
Í gærmorgun var kveikt í 21 bíl á innan við klukkustund í Aakersberga, sem er rétt fyrir utan Stokkhólm. Lögreglan elti brennuvargana í þyrlu. Í fyrrinótt var kveikt í um 20 bílum í borginni.
Dagens Nyheter segir í morgun að 18 hafi verið handteknir í nótt, aðallega fótboltabullur. Lögreglan segir að nóttin hafi verið róleg en vill ekki fullyrða, hvort hámarki ólætanna hafi verið náð.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.