Átján aðildarríki Evrópusambandsins, þar á meðal Þýskaland, neita að verða við fyrirmælum framkvæmdastjórnar ESB um að grípa til viðskiptalegra refsiaðgerða gegn Kína til að vernda framleiðendur tækja til að virkja sólarorku. Kínverjar hótuðu að grípa til gagnaðgerða og nú verður framkvæmdastjórn ESB að leita eftir samkomulagi við þá um lausn deilunnar.
Framkvæmdastjórn ESB hafði ákveðið að leggja 47% refsitoll tímabundið á tæki til að virkja sólarorku frá Kína í því skyni að vernda evrópsk fyrirtæki á þessu sviði. Þjóðverjar hafa nú opinberlega snúist gegn þessum áformum.
Philpp Rösler, efnahagsmálaráðherra Þýskalands, sagði í Berlín mánudaginn 27. maí fyrir hádegisverðarfund með Li Keqiang, forsætisráðherra Kína: „Sjónarmið okkar er að slíkra refsiaðgerða sé ekki lengur þörf og þess vegna hafna Þjóðverjar þeim.“
Heimildarmaður Le Monde segir að 17 önnur ríki hafi lýst andstöðu við ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar sem verði nú að leita annarra leiða. Rök hennar voru meðal annars þau að 30.000 störf væru í hættu innan ESB vegna undirboða Kínverja á þessu sviði.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.