Mánudagurinn 25. janúar 2021

Spánn: Seðlabanki Evrópu hvetur til frekari ráðstafana til að verja hús­eigendur gegn nauðungarsölum


28. maí 2013 klukkan 12:07

Seðlabanki Evrópu hefur hvatt spænsk stjórnvöld til að gera frekari ráðstafanir til að verja húseigendur fyrir nauðungarsölum. Þessi hvatning kemur fram í þriggja síðna bréfi frá Mario Draghi, aðalbankastjóra SE þar sem segir að líta eigi á nauðungarsölu sem leið til þrautavara. Lánveitendur með tryggingu eigi að líta á það sem sína hagsmuni að komast hjá nauðungarsölu segir í bréfinu. Þær séu dýrar og skili yfirleitt lægra söluverði en frjáls sala, þar sem veðskuldari haldi áfram að greiða allt eða hluta þess sem um hafi verið samið. Bréfið er svar við ósk stjórnvalda á Spáni um álit SE á frumvarpsdrögum, sem eiga að verja húseigendur betur.

Í bréfi Draghi kemur fram, að lánveitendur með tryggingu eigi að breyta núverandi viðbrögðum við vanskilum lántakenda með það í huga að komast hjá nauðungarsölum og að ný lög eigi að verða öllum aðilum hvatning til þess að komast að samkomulagi um tímabæra og skynsamlega endurskipulagningu skulda.

Nauðungarsölur og útburðir hafa verið sérstakt vandamál á Spáni og í fréttum Evrópuvaktarinnar hefur komið fram að dómarar þar í landi hafi tekið höndum saman um að leiðbeina fólki í þeirri stöðu.

Frá þessu segir í spænska dagblaðinu El País.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS