Föstudagurinn 23. apríl 2021

NYTimes: Minnkandi stuðningur við landamæralausa Evrópu

Svisslendingar, Danir, Bretar og Spánverjar hafa sett upp takmarkanir


29. maí 2013 klukkan 09:32
NASA
Gervitunglamynd af Evrópu

Ríkisstjórn Sviss hefur á ný tekið upp kvóta á atvinnuleyfi fyrir fólk frá aðildarríkjum ESB. Þjóðarflokkur Sviss berst nú fyrir því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um innflytjendur, sem gæti leitt til þess að landamæraeftirlit verði tekið upp á ný í fyrsta sinn í fimm ár. Frá þessu segir New York Times, sem segir Svisslendinga ekki þá einu, sem hafi áhyggjur af innflytjendum. Efnahagslægð, vaxandi styrkur þjóðernissinnaðra flokka og að framundan kunni að vera miklir flutningar fólks frá Rúmeníu og Búlgaríu hefur dregið úr áhuga á landamæralausri Evrópu, segir blaðið.

Brezka ríkisstjórnin hefur lagt til að auðveldað verði að flytja útlendinga úr landi og krefjast þess að aðfluttir greiði fyrir heilbrigðisþjónustu. Danir tóku upp landamæravörzlu á ný fyrir tvemur árum vegna þrýstings frá Danska þjóðarflokknum. Spánn hefur tekið upp á ný kröfu um að Rúmenar, sem flytjast til Spánar hafi samninga um vinnu eftir að fjöldi þeirra Rúmena, sem flytja til Spánar hafði fjórfaldast. Með því gekk Spánn gegn fyrri skuldbindingum um að Spánn væri opið land fyrir Rúmena.

New York Times segir að þetta séu vísbendingar um að aðildarríki, sem eiga við efnahagsvanda að kljást dragi sig inn í skel sína. Catherine Ashton, utanríkisstjóri ESB segir að takmarkanir Svisslendinga sýni að þeir horfi fram hjá þeim hagsbótum. sem borgarar Sviss og aðildarríkja ESB hafi af frjálsum flutningum fólks landa í milli.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS