Frakkar og Þjóðverjar ætla að beita sér fyrir að ráðinn verði háttsettur embættismaður til fylgjast með efnahagsmálum og framvindu þeirra á evru-svæðinu. François Hollande Frakklandsforseti skýrði frá þessu fimmtudaginn 30. maí.
„Við erum sammála um að fjölga verði leiðtogafundum evru-ríkjanna og það verði að fá mann til að leiða evru-ráðherrahópinn sem sinni því verkefni einu,“ hann eigi að fylgjast með framkvæmd sameiginlegra ákvarðana hópsins. Hollande skýrði frá þessu á sameiginlegum blaðamannafundi með Angelu Merkel Þýskalandskanslara í París.
Jeroen Dijsselbloem, fjármálaráðherra Hollands, situr nú í forsæti evru-ráðherrahópsins þar sem sitja fjármálaráðherrar 17 ríkja. Ráðherrarnir hittast mánaðarlega á óformlegum fundum til að móta sameiginlega stefnu í nafni evru-ríkjanna.
Hollande segir að nýi forseti evru-ráðherrahópsins ætti að fá umboð evru-ráðherranna til að stuðla að aðgerðum í þágu nýrra starfa, rannsókna og atvinnurekstrar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.