Spænsk stjórnvöld fögnuðu því í gær, þriðjudag, að nýjar tölur um skráningu atvinnuleysis bendi til að þróunin sé að snúast við. Fjöldi þeirra, sem skráðu sig atvinnulausa í maí minnkaði um 98.265. Að vísu er það hefðbundið að hótel, veitingahús og barir ráði fólk í maí til þess að mæta miklum fjölda ferðamanna yfir sumarið. Financial Times segir að sé tekið tillit til þess sé minnkunin 265.
Engu að síður lítur ríkisstjórnin svo á að þessar tölur bendi til að betri tíð sé í vændum og vísa til þess að fleiri hafi verið ráðnir nú en á sama tíma í fyrra. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar sagði um helgina að það versta væri afstaðið.
Aðrir greinendur telja hins vegar að það sé of snemmt fyrir spænsku ríkisstjórnina að fagna sigri. Þeir benda á að enn sé mikil efnahagslægð á Spáni.
Auk jákvæðrar þróunar í fækkun atvinnulausra hefur ávöxtunarkrafan á spænsk ríkisskuldabréf haldið áfram að lækka. Sumir greinendur telja að þetta tvennt saman dragi úr þrýstingi á stjórnvöld að koma fram nauðsynlegum umbótum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.