Sunnudagurinn 7. mars 2021

Grikkland: Þríeykið hefur áhyggjur af lélegri skattheimtu

Fastlaunamenn og láglaunafók borga-hinir ríku sleppa sagði fulltrúi í framkvæmda­stjórn ESB á fundi í gríska þinginu


5. júní 2013 klukkan 09:22

Þríeykið (ESB/AGS/SE) hefur lýst áhyggjum yfir því hve illa Grikkjum gengur að ná tökum á innheimtu skatta að því er fram kemur á ekathimerini, gríska vefmiðlinum. Skuldbindingar grískra stjórnvalda um þetta efni voru ein af forsendunum fyrir útborgun lána til Grikklands. Í frétt vefmiðilsins kemur fram, að það hafi komið fulltrúum þríeykisins óþægilega á óvart hve margir steinar séu lagðir í götu bættrar skattheimtu.

Eftirlitsmennirnir segja, að ráðherrar hafi ekki tekið nauðsynlegar ákvarðanir, kynningarefni hafi ekki verið gefið út, kerfisbreytingar ekki framkvæmdar og nýir skattheimtumenn ekki ráðnir. Þá hefur athyglin sérstaklega beinzt að innheimtu skatta hjá ríku fólki, þar á meðal lögfræðingum og læknum.

Einn af fulltrúum í framkvæmdastjórn ESB vék að því í ræðu á fundi í gríska þinginu að það væri ósanngjarnt að leggja svo mikla skattbyrði á fastlaunamenn og láglaunafólk en að hinir efnameiri slyppu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS