Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, var í Reykjavík fimmtudaginn 6. júní og ræddi makríldeiluna við Sigurð Inga Jóhannsson, nýjan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu föstudaginn 7. júní þar sem segir:
„Í gær, 6. júní var haldinn í Reykjavík fundur Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB. Meginmál fundarins var staða mála í deilu Íslands, Færeyja, Noregs og ESB um nýtingu makrílstofnsins í Norðaustur Atlantshafi.
Sjávarútvegsstjórinn óskaði fyrir fáum dögum eftir fundinum, sem ráðherrann varð fúslega við. Áttu þau hreinskiptnar en vinsamlegar viðræður um vandann sem hlutaðeigandi ríki standa frammi fyrir og útskýrði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra málstað Íslands. Bæði lögðu áherslu á nauðsyn þess að ná samkomulagi um sjálfbæra nýtingu á þessum verðmæta fiskistofni. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði í því efni þunga áherslu á að samkomulag yrði að byggjast á viðurkenningu gagnaðila á ríkum rétti Íslands vegna mikillar makrílgengdar í íslenskri efnahagslögsögu. Urðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sjávarútvegsstóri ESB ásátt um að leita allra leiða til að samningaferlinu verði fljótlega fram haldið.“
Á vefsíðu Damanaki er aðeins birt mynd af fundarmönnum í Reykjavík en ekkert sagt efnislega um viðræðurnar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.