Laugardagurinn 23. febrúar 2019

Litháar eiga í orkustríði við Rússland-telja sig borga alltof hátt verð til Gazprom

Rússar nota orku enn sem tæki til að beita pólitískum þrýstingi segir forseti Litháen


11. júní 2013 klukkan 10:29
Dalia Grybauskaite

Litháar eiga í eins konar orkustríði við Rússland að því er fram kemur á euobserver. Þegar Litháen gerðist aðili að Evrópusambandinu 2004 var Litháum falið að loka kjarnorkuveri í Ignalina, sem byggt var á tímum Sovétríkjanna og byggði á sömu tækni og kjarnorkuverið í Chernobyl (Úkraínu). Kjarnorkuverinu var lokað 2009 en það hafði séð Litháum fyrir um 77% af raforku, sem notuð er í landinu. Það þýddi hins vegar að kaup á gasi og raforku frá Rússlandi margfölduðust en þaðan fá Litháar um 90% af þeirri orku, sem þeir nota.

Gazprom, rússneska orkufyrirtækið er meðeigandi að olíuleiðslum, sem liggja um Litháen og Gazprom er eitt af þeim fyrirtækjum, sem selja orku á hvað hæstu verði. Dalia Grybauskaite, forseti Litháen segir að Rússland noti orku enn sem tæki til að beita þjóðir pólitískum þrýstingi og segir að það eigi ekki bara við um Eystrasaltsríkin og vísar til Búlgaríu í þeim efnum. Litháar eru að reyna að breyta eignarhaldinu á olíuleiðslum um land sitt og nota regluverk ESB sem röksemd fyrir því en þar er kveðið á um að skilja eigi að annars vegar eignarhald á flutningsneti og hins vegar á sölustarfsemi.

Litháar telja sig borga alltof hátt verð fyrir orku frá Rússlandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS