Þýska þingið felldi fimmtudaginn 13. júni tillögu Vinstriflokksins um vantraust á Thomas de Maiziére, varnarmálaráðherra Þýsklands, með 307 atkvæðum gegn tillögunni og 233 atkvæðum með henni. Rannsókn þingsins á hlut ráðherrans í drón-málinu svonefnda er þó ekki lokið.
Þingmenn stjórnarflokkanna, kristilegra CDU/CSU og frjálslyndra FDP, standa að baki varnarmálaráðherranum í drón-málinu sem fær á sig annan blæ en ella vegna þess að aðeins þrír mánuðir eru til þingkosninga í Þýskalandi.
Vantrauststillagan var rökstudd með að Maiziére bæri perónulega ábyrgð á að 500 milljónum evra af skattfé almennings hefði verið sóað til einskis við að þróa og smíða Euro Hawk, evrópska útgáfu af bandarísku fjarstýrðu flugfari, dróni, sem aldrei komst á loft.
Þá hefði ráðherrann átt hlut að því að þingið og þjóðin var ekki upplýst um málið eða fékk rangar upplýsingar um það.
Thomas Oppermann, þingflokksformaður jafnaðarmanna (SPD) sagði fimmtudaginn 13. júní að allir flokkar hefðu samþykkt að málið yrði rannsakað á vegum þingsins og rannsóknin hæfist í lok júní. Ágreiningur er milli stjórnar- og stjórnarandstöðu hvernig rannsókninni skulu háttað. Stjórnarandstaðan vill aðeins rannsaka þátt Maiziéres en stjórnarflokkarnir vilja að rannsóknin nái aftur til þess tíma þegar tekin var ákvörðun um verkefnið, árið 2001, þegar jafnaðarmenn og græningjar sátu í ríkisstjórn.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.