Mánudagurinn 16. desember 2019

Sigurður Ingi undrast neikvæða afstöðu Damanaki til makrílsamninga


16. júní 2013 klukkan 19:17

Pat the Cope Gallhager, ESB-þingmaður frá Írlandi, beitti sér fyrir harðri ályktun gegn Íslendingum vegna makrílveiða vorið 2012. Hann sagði á ESB-þinginu föstudaginn 14. júní að hann undraðist að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, hefði ekki gripið til refisaðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða í sumar. Damanaki sagði ekki samningsgrundvöll við Íslendinga. Því hefði hún kynnst á fundi í Reykjavík 6. júní með nýjum sjávarútvegsráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni. Íslendingar segðust sáttfúsir en gerðir fylgdu ekki þeim orðum.

Fréttastofa ríkisútvarpsins ræddi við Sigurð Inga af þessu tilefni og undraðist hann orð Damanaki. Á ruv.is segir sunnudaginn 16. júní, ráðherrann sagði:

„Þar [á fundinum 6. júni] kom skýr vilji okkar fram um að ná fram samningum og hvernig við gætum tekið næstu skref í því. Að þeir heyri að það sé ekki samningsvilji að okkar hálfu, það er rangt og við höfum sýnt það ítrekað að við höfum vilja til þess og það skiptir okkur miklu máli að ná niðurstöðu í þessu.“

Ráðherraráð ESB tekur ákvörðun um refsiaðgerðir, innan ráðsins eru ráðherrar sem hafa lýst andstöðu við að gripið verði til aðgerðanna. Damanaki sagði í ESB-þinginu að staðan í makrílmálinu mundi skýrast eftir nokkrar vikur.

Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi ráðherra, ákvað aflaheimildir íslenskra makrílveiðiskipa á þessu ári og minnkaði þær um 15% frá því á síðasta ári.

Í fréttatilkynningu sem sjávarútvegsráðunetið sendi frá sér 7. júní eftir fund ráðherra með Damanaki sagði meðal annars:

„Sjávarútvegsstjórinn [Damanaki] óskaði fyrir fáum dögum eftir fundinum, sem ráðherrann varð fúslega við. Áttu þau hreinskiptnar en vinsamlegar viðræður um vandann sem hlutaðeigandi ríki standa frammi fyrir og útskýrði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra málstað Íslands. Bæði lögðu áherslu á nauðsyn þess að ná samkomulagi um sjálfbæra nýtingu á þessum verðmæta fiskistofni. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði í því efni þunga áherslu á að samkomulag yrði að byggjast á viðurkenningu gagnaðila á ríkum rétti Íslands vegna mikillar makrílgengdar í íslenskri efnahagslögsögu. Urðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sjávarútvegsstóri ESB ásátt um að leita allra leiða til að samningaferlinu verði fljótlega fram haldið.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS