Mánudagurinn 27. júní 2022

Þjóðverjar minnast uppreisnarinnar í A-Berlín 17. júní 1953

60 ár liðin frá fyrstu uppreisn gegn Sovétvaldinu í A-Evrópu


18. júní 2013 klukkan 09:59

Þess var minnzt í Þýzkalandi í gær, 17. júní, að 60 ár voru liðin frá uppreisninni í Austur-Berlín þann dag, árið 1953. Joachim Gauck, forseti Þýzkalands var 13 ára þá og átti heima í Rostock. Hann sagði í ræðu í þýzka þinginu sl. föstudag að hann myndi vel eftir þeirri hrifningaröldu, sem hefði gengið yfir, þegar fréttist að hafnarverkamenn hefðu farið í verkfall. Hann kvaðst hafa verið viss um að eitthvað nýtt væri að gerast.

Angela Merkel, kanslari, sem einnig ólst upp í Austur-Þýzkalandi sagði í gær, að uppreisnin 17. júní 1989 hefði verið eins konar fyrirboði atburðanna 1989, þegar múrinn féll.

Uppreisnin hófst daginn áður 16. júní 1953, þegar byggingaverkamenn í Austur-Berlín gengu eftir Stalinallee að stjórnarráði kommúnistastjórnarinnar og kröfðust þess að fallið yrði frá lengingu vinnutíma og boðuðu allsherjar verkfall næsta dag. Gögn sýna að um ein milljón manna í 700 bæjum og borgum sinntu kallinu.

Þetta var fyrsta uppreisnin gegn Sovétvaldinu í Austur-Evrópu. Hún var barin niður með því að senda sovézka skriðdreka út á göturnar.

Nú er til gata í Berlín, sem heitir 17. júní gatan.

Frá þessu segir í New York Times.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS