Fimmtudagurinn 21. febrúar 2019

Írland: Enda Kenny hvetur „háttsetta“ og „forréttindafólk“ til að leggja fram upplýsingar um fall Anglo Irish

Segir að þetta fólk eigi að styðja við bakið á írska lýðveldinu


29. júní 2013 klukkan 08:53
Enda Kenny

Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands hvetur „háttsetta“ menn, sem þekki söguna að baki óförum Anglo Irish Bank til að stíga fram á sjónarsviðið, standa við bakið á írska lýðveldinu og leggja fram þær upplýsingar, sem þeir kunni að búa yfir. Kenny segir að upplýsingar um samtal tveggja háttsettra stjórnenda bankans haustið 2008 um hvernig bankinn hafi vísvitandi platað stjórnvöld til að leggja fram 7 milljarða evra til að bjarga bankanum hafi skaðað orðspor Írlands á alþjóðavettvangi. Hann segist taka undir með Angelu Merkel, kanslara Þýzkalands, sem hefur lýst fyrirlitningu sinni á vinnubrögðum bankamannanna og segir að þau hafi skaðað lýðræðið. Frá þessu segir í Irish Times.

Kenny segir að upptakan sýni virðingarleysi, hroka og ósvífni stjórnenda bankans gagnvart öllum, ríkisstjórninni, borgurum landsins, fyrirtækjum, einstökum samfélögum og fjölskyldum.

Kenny segir að málið undirstriki mikilvægi þess að fram fari rannsókn á vegum írska þingsins á falli bankans, sem írskir skattgreiðendur hafa lagt 30 milljarða evra til. Kenny sagði að það „forréttindafólk“, sem hefði starfað í og stjórnað stjórnkerfi Írlands yrði að standa með lýðveldinu.

Þessi orð írska forsætisráðherrns féllu í lok leiðtogafundar Evrópusambandsríkjanna í Brussel í gær.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS