John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði mánudaginn 1. júlí „ekki óvenjulegt“ að aflað væri upplýsinga um önnur lönd en lofaði að kanna réttmæti ásakana um að Bandaríkjamenn hefðu sett hlerunarbúnað í skrifstofur Evrópusambandsins.
Kerry sagði að Catherine Ashton, utanríkismálastjóri ESB, hefði látið í ljós áhyggjur vegna frétta um þessar hleranir á fundi þeirra í Brunei. Hann sagðist hins vegar ekki geta tjáð sig um einstök atvik þar sem hann væri og hefði verið á ferðalagi erlendis.
„Lafði Ashton hreyfði þessu máli í samtali við mig í dag og við ætlum að ræða málið frekar. Ég sagðist mundu kanna nákvæmlega um hvað málið snerist og hafa samband við hana að nýju,“ sagði Kerry við blaðamenn á fundi ASEAN-ríkja. Utanríkisráðherrann sagði:
„Frá mínum bæjardyrum séð gerir hvert einasta ríki í heimi sem er virkt á alþjóðavettvangi og gætir þjóðaröryggis margvíslegar ráðstafanir til verndar öryggishagsmunum sínum og alls konar upplýsingar stuðla að styrk þeirrar verndar. Ég veit ekki betur en þetta sé ekki óalgengt meðal fjölda þjóða.
Um málið vil ég ekki segja meira fyrr en ég hef kynnt mér allar staðreyndir þess og veit nákvæmlega hver staðan er.“
Innan Evrópusambandsins hefur brotist út mikil reiði vegna frétta í Der Spiegel, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni, um að njósnastofnanir Bandaríkjamanna hafi sett hlerunarbúnað í ESB-skrifstofur og sendiráð Evrópuríkja í Washington.
Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB, sagði sunnudaginn 30. júní að þetta hleranamál kynni að spilla fyrir fríverslunarviðræðum ESB og Bandaríkjanna sem eru að hefjast.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.