Frönsk stjórnvöld bönnuðu flugvél Evos Morales, forseta Bolivíu, að fljúga um franska lofthelgi þriðjudaginn 2. júlí á leið hennar frá Moskvu til Bolivíu. Leit hefur farið fram innan stjórnkerfisins í París að þeim sem gaf fyrirmælin og nú berast böndin að Camille Putois, vara-stjóri einkaskrifstofu Jean-Marcs Ayraults forsætisráðherra.
Christophe Chantepy, stjórnandi einkaskrifstofu forsætisráðherrans, neitar að beina spjótum að einhverjum einstökum starfsmanni. Putois starfaði hjá almannatengslafyrirtækinu Publicis áður en hún hóf störf fyrir forsætisráðherrann. Chantepy segir við Le Monde: „Þetta er ráðuneytisákvörðun, það urðu mistök eins Laurent Fabius [utanríkisráðherra] sagði og frönsk stjórnvöld hafa beðist afsökunar,“ segir Chantepy. „Eftir á þykir öllum miður hvernig þetta fór.“
Franska ríkisstjórnin taldi að bandsaríski uppljóstrarinn Edward Snowden leyndist um borð í vélinni frá Bolivíu. „Það voru ósamhljóða upplýsingar um farþegana um borð,“ sagði François Hollande Frakklandsforesti miðvikudaginn 3. júlí. „Um leið og ég fékk vitneskju um að þetta væri flugvél forseta Bolivíu gaf ég heimild um yfirflug,“ sagði forsetinn.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.