Fimmtudagurinn 4. mars 2021

Grikkland: Evruríkin samþykkja áfanga­greiðslur-uppsögn 15 þúsund opinberra starfsmanna fyrir lok 2014


9. júlí 2013 klukkan 08:35

Fjármálaráðherrar evruríkjanna samþykktu í gær 6,8 milljarða evra áfangagreiðslur til Grikklands þó á þann veg að sú upphæð verði greidd á nokkrum mánuðum og með skilyrðum um að Grikkir uppfylli tilteknar skuldbindingar. Niðurstaða þríeykisins, ESB/AGS/SE var sú, að í stórum dráttum væru Grikkir á réttri leið með að framfylgja skuldbindingm sínum,

Þetta er að sögn ekathimerini, gríska vefmiðilsins, heldur lægri upphæð en Grikkir höfðu gert sér vonir um sem var 8,1 milljarður evra. Af þeim 6,8 milljörðum, sem samþykktir voru í gær koma 2,5 milljarðar frá öðrum evruríkjum og verður sú upphæð greidd í þessum mánuði. Evruríkin reiða svo fram 500 milljónir evra til viðbótar í október. Þá munu seðlabankar evruríkjanna leggja fram í þessum mánuði til viðbótar 1,5 milljarða evra og 500 milljónir í október. Loks er gert ráð fyrir að AGS greiði 1,8 milljarð evra síðar í þessum mánuði. Christine Lagarde, forstjóri AGS, sem sótti fundinn sagði „líklegt“ að AGS mundi samþykkja að inna greiðsluna af hendi.

Þótt lánveitendur Grikkja segi að þeir séu í stórum dráttum á réttri leið er ljóst að sögn ekathimerini að þeir telja jafnframt að mikið verk sé óunnið í opinbera geiranum. Í dag eða á morgun mun ríkisstjórnin leggja fyrir þingið frumvarp um endurskoðun á skattakerfinu og uppsagnir opinberra starfsmanna. Gert er ráð fyrir að frumvapið komi til atkvæða í næstu viku. Umdeildasti hluti þess er að setja 12500 opinbera starfsmenn inn í kerfi, sem þýðir launalækkun í aðdraganda endurskoðunar á störufm þeirra. Jafnframt er gert ráð fyrir að fyrir lok næsta árs hafi opinberum starfsmönnum verið fækkað um 15 þúsund.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS