Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Beringsund: Mikil fjölgun skipa frá Rússlandi um Norðausturleiðina

Mun færri skip fara Norðvesturleiðia


15. júlí 2013 klukkan 07:59
Rosatomflot
Skipalest á norðurleiðinni við Rússland

Fjöldi skipa, sem fara um Beringsund á milli Rússlands og Alaska hefur nær tvöfaldast á fjórum árum. Árið 2009 voru þau 130 en á síðasta ári 250. Alaska Dispatch vekur athygli á því að þessi aukna umferð sé fyrst og fremst á vegum Rússa og fari eftir Norðaustur-siglingaleiðinni. Nú þegar hafi rússnesk yfirvöld veitt leyfi til 190 skipa á þessu sumri. Vefmiðillinn segir að þessi skip flytji járn, olíu og aðra framleiðslu frá Rússlandi og Noregi til Asíulanda.

Öðru máli gegni um Bandaríkin. Umferð þaðan sé fyrst og fremst bátar og prammar sem sjá um að flytja birgðir til einangraðra byggða. Að auki sé um að ræða rannsóknarskip og skip, sem veiti aðstoð vegna olíu- og gasleitar í Norðurhöfum.

Vefmiðillinn bendir á að fá skip fari Norðvesturleiðina, þótt þeim fjölgi líka. Þannig hafi 28 skip farið þá leið á síðasta ári og hafi það verið 17 skipa fjölgun frá árinu áður.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS