Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Grikkland: Verkföll hafin vegna ákvarðana á þingi um fækkun opinberra starfsmanna


15. júlí 2013 klukkan 21:26

Ýmsir opinberir starfsmenn í Grikklandi hafa hafið verkfallsaðgerðir í aðdraganda þess að á þingi landsins verða á miðvikudaginn 17. júlí verða greidd atkvæði um fækkun starfa til að spara ríkisútgjöld og koma til móts við alþjóðlega neyðarlánveitendur.

Borgarlögreglumenn mótmæla fyrir framan þinghúsið í Aþenu.

Borgarlögreglumenn í Aþenu voru meðal þeirra sem stofnuðu til verkfalla mánudaginn 15. júlí. Þeir notuðu lögreglubíla og vélhjól til að stöðva umferð í Aþenu.

Venjulega vinna þessir lögreglumenn við að veita stöðumælasektir eða ýta við götusölumönnum. Þeir hafa boðað þriggja daga verkfall. Boðað hefur verið 24 tíma verkfall þriðjudaginn 16. júlí sem talið er að muni trufla flug- og lestarferðir auk þess að skapa vandræði í sjúkrahúsum.

Til þessa hefur verið þrengt að opinberum starfsmönnum með launalækkunum en nú er komið að uppsögnum þeirra. Verkföllin eru boðuð undir slagorðinu: „Allsherjarverkfall – við erum fólk en ekki tölur.“

Gríska þingið kemur saman til fundar miðvikudaginn 17. júlí og þá verður tekin afstaða til tillögu frá Antonis Samaras forsætisráðherra um að fækka opinberum starfsmönnum um 15.000 fyrir árslok 2014, þar af 4.000 í ár. Samaras hefur lítinn meirihluta þingmanna að baki sér.

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, er væntanlegur til Aþenu fimmtudaginn 18. júlí þar sem hann mun hitta ráðherra og embættismenn,

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS