Í kvöld verða akvæði greidd í gríska þinginu um lagafrumvarp, sem felur í sér uppsagnir yfir 12 þúsund opinberra starfsmanna fyrir lok næsta árs og getur haft áhrif á stöðu 25 þúsund opinberra starfsmanna til viðbótar. Í gær hittust þeir Antonis Samaras, forsætisráðherra og Evangelos Venizelos, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra til að bera saman bækur sínar um stöðu mála innan þingflokka beggja.
Stjórnarflokkarnir hafa fimm þingsæta meirihluta í þinginu og ekathimerini, gríski vefmiðillinn segir að forystumenn flokkanna tveggja geri sér góðar vonir um að meirihlutinn haldi í kvöld.
Ekathimerini segir að þeir hafi meiri áhyggjur af áhrifum málsins á 325 borgar- og bæjarstjóra í Grikklandi í ljósi sveitarstjórnakosninga á næsta ári.
Það vakt óánægju í gríska þinginu í gær hve fáir ráðherrar voru viðstaddir umræðurnar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.