Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, sagði sendiherrum og öðrum sendierindrekum þriðjudaginn 16. júlí að nánari tengsl milli ESB undir forystu Þjóðverja og Rússa dygðu til að fólk kannaði hvort „börn sín séu enn í garðinum“. Ekki megi skilja orðin á annan veg en sem óbeina en þó skýra skírskotun til griðasáttmála Hitlers og Stalíns að sögn Spiegel Online.
„Þegar einstaklingur les um nálgunina milli Rússa og ESB undir forystu Þjóðverja lítur hann út til að gá hvort börnin hans séu í garðinum,“ sagð Orbán þriðjudaginn 16. júlí á árlegum fundi ungverskra sendiherra að sögn þýsku fréttastofunnar DPA.
Ummælin féllu þegar Orbán svaraði spurningu sendiherra um samskipti ESB og Rússlands.
Spiegel Online segir miðvikudaginn 17. júlí að í Mið- og Austur-Evrópu standi mörgum ekki á sama um sífellt nánari tengsl milli ráðamanna í Moskvu og Berlín. Í þessum löndum muni menn griðasáttmála Hitlers og Stalíns þar sem einræðisherrarnir skiptu stærstum hluta A-Evrópu og felldu undir áhrifasvæði sín, Þjóðverja og Rússa.
Á vefsíðunni Spiegel Online er rifjað upp að í maí hafi Orbán látið falla orð um skriðdreka nasista þegar hann ræddi um afstöðu Þjóðverja gagnvart Ungverjum, þá hafi Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, brugðist við af óvenjulega mikilli hörku.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.