Fáránlegt að þvinga fátækari ríki til að leggja fram fé til bjargar evruríkjum
Viviane Reding, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að tími þríeykisins svokallaða ESB/AGS/SE í málefnum evruríkja í vanda sé liðinn. Þetta kemur fram í samtali við gríska dagblaðið Kathimerini. Reding segir að grundvallarákvarðanir á borð við uppsagnir tugþúsunda opinberra starfsmanna eigi ekki að taka á bak við lokaðar dyr.
Hún segir að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi verið kallaður til vegna þess að það hafi skapast neyðarástand og að hann hefði haft reynslu af því að takast á við slík vandamál. Nú sé ekki lengur um neyðarástand að ræða og þess vegna sé tími þríeykisins liðinn. Nú sé fyrir hendi hjá Evrópusambandinu bolmagn til að takast á við vandamál af þessu tagi.
Þetta sé líka spurning um lýðræði. Íbúar Evrópu treysti ekki þríeykinu. Og það sé rétt tilfinning hjá þeim. Málefni á borð við uppsagnir tugþúsunda eigi að ræða fyrir opnum tjöldum á Evrópuþinginu.
Þá spyr Reding hvaðan peningar AGS komi, sem sjóðurinn hafi lagt til evruríkjanna. Þeir peningar komi m.a. frá löndum á borð við Brasilíu og Indland. Þegnar þeirra landa séu miklu fátækari en fólkið í evruríkjunum Samt séu þessi lönd pínd til að leggja fram fé til að hjálpa evruríkjunum. Þetta sé fáránlegt. Evrópuríkin eigi að leysa sín vandamál sjálf og geti það.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.