Fimmtudagurinn 25. febrúar 2021

Demantaránið í Cannes: Verðmæti þýfisins talið nema 136 milljónum dollara


29. júlí 2013 klukkan 17:11

Upplýst hefur verið að verðmæti demantanna sem stolið var í Carlton-hótelinu í Cannes sunnudaginn 28. júlí hafi ekki numið 53 milljónum dollara eins og upphaflega var talið heldur 136 milljónum dollara. Franskur saksóknari nefndi þessa tölu mánudaginn 29. júlí.

Demantasýningin auglýst

Að morgni sunnudags sópaði vopnaður maður að sér gimsteinunum sem Leviev-gimsteinasalinn frá Ísrael hafði til sýnis í hótelinu.

Philippe Vique aðstoðarsaksóknari sagði við AP-fréttastofuna að skipuleggjandi gimsteinasýningarinnar hefði sagt verðmæti þýfisins hærra en áður hafði verið talið eftir nákvæma athugun á hinu horfna.

Þjófurinn ruddist inn í gegnum glerdyr á jarðhæð hótelsins og hljóp síðan á brott. Athygli beinist meðal annars á glæpaflokki sem kennir sig við Bleika pardusinn og hefur staðið að gimsteinaránum víða um lönd. Einn úr hópnum, Bosníumaður, strauk úr svissnesku fangelsi með aðstoð félaga sinna fimmtudaginn 25. júlí.

Alfred Hitchcock notaði Carlton-hótelið árið 1955 þegar hann gerði kvikmyndina To Catch A Thief um gimsteinaþjóð á frönsku Rivierunni.

Heimild: BBC

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS