Stjórnendur Deutsche Bank skýrðu þriðjudaginn 30. júlí frá verulegu tekjutapi bankans á öðrum ársfjórðungi 2013, hluthöfum hans til lítillar gleði. Sagt er að tapið megi að nokkru rekja til fjármuna sem lagðir hafa verið til hliðar vegna málaferla.
Hagnaður Deutsche Bank minnkaði um tæp 50% á öðrum ársfjórðungi, tekjur lækkuðu í 335 milljón evrur miðað við 666 milljón evrur á síðasta ári. Kostnaður bankans af málarekstri er mikill. Bankinn svarar til saka vegna bandarískra veðskuldabréfa og fyrir að taka þátt í samráði banka um breytingar á vöxtum.
Í yfirlýsingu bankans segir að hann hafi lagt 630 milljónir evra til hliðar í því skyni að standa undir kostnaði vegna málaferla en alls hefur bankinn orðið af 3 milljörðum evra vegna mála sem hann hefur tapað fyrir dómstólum eða samið um til að komast hjá málsókn.
Jürgen Fitschen og Anshu Jain, forstjórar bankans, sögðu að skattar á bankann reyndust nú hafa hækkað í 58% úr 31% fyrir ári sem einnig minnkaði tekjuafganginn.
Hagnaður fyrir skatta er nú 792 milljónir evra, 18% lækkun á milli ára og einnig langt fyrir neðan spár greinenda. Fitschen og Jain sögðust þrátt fyrir allt vera ánægðir með niðurstöðuna í ljósi þeirra fjárhagsbagga sem hefðu blasað við bankanum.
Þeir fullyrtu að bankinn hefði gripið til árangursríkra aðgerða til að styrkja fjárhagslega stöðu sína í samræmi við nýjar reglur og viðleitni til að minnka kostnað.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.