Miðvikudagurinn 29. júní 2022

Manning sakfelldur vegna gagna til WikiLeaks - ekki sekur um „aðstoð við óvininn“


30. júlí 2013 klukkan 17:50

Bandarískur herdómari komst að þeirri niðurstöðu þriðjudaginn 30. júlí að Bradley Manning, hermaðurinn sem miðlaði gögnum til WikiLeaks, hefði ekki gerst sekur um aðstoð við óvini Bandaríkjanna en sakfelldi hann hins vegar fyrir njósnir.

Bradley Manning

Manning var fundinn sekur um 20 ákæruatriði, þar af fimm sem snerta njósnir. Miðað við sakaratriði er unnt að dæma hann í 144 ára fangelsi. Refsingin verður tekin fyrir í dómstólnum miðvikudaginn 31. júlí.

Manning (25 ára) hafði játað að vera heimildarmaður WikiLeaks og að hafa sent vefmiðluninni gífurlegt magn trúnaðargagna um stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan og fanga sem haldið er í Guantanmo-fangelsinu án dóms auk um 250.000 skjala bandaríska utanríkisráðuneytisins.

Manning lýsti sig sekan um minni brot en birtust í ákæru á hendur honum. Fyrir brotin sem hann játaði má dæma hann í allt að 20 ára fangelsi. Hann las í febrúar 2013 35 blaðsíðna yfirlýsingu þar sem hann reyndi að skýra ástæðurnar að baki ákvörðun sinni um að leka skjölunum.

„Ég tel að hefði almenningur aðgang að þessum upplýsingum kynni það að vekja umræður innan Bandaríkjanna um hlutverk heraflans og almenn markmið utanríkisstefnunnar,“ sagði hann þá.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS