Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, hefur viðurkennt að hann nái ekki þeim árangri sem að var stefnt á árinu 2013. Þetta kemur fram í hálfsárs-uppgjöri sem bankinn hefur birt og sagt er frá í Jyllands-Posten fimmtudaginn 1. ágúst. Bankinn lækkar áætlaðar afkomutölur ársins í 6,5 til 9 milljarða d.kr. í stað 7,7 til 10 milljarða d.kr. í upphaflegri áætlun.
„Hin erfiðu almennu efnahagsskilyrði með lágum vöxtum auk óróa á fjármálamörkuðum í júní valda því að við breytum spám um horfur í ár,“ segir Eivind Kolding, forstjóri bankans.
Tekjur bankans hafa minnkað. Á síðasta ári numu þær 23.450 milljörðum d.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins í ár, 2013, nema þær 20.003 milljörðum d.kr. eða 15% lækkun. Talið er að heildartekjur bankans verði lægri árið 2013 en þær voru árið 2012. Tekist hefur að lækka kostnað við rekstur bankans um 11.918 milljarða d.kr. sem er 4% lækkun. Þess er vænst að kotsnaður verði lægri í ár en 2012.
Bankinn hefur farið illa vegna viðskipta á Írlandi og reiknar með að afskrifa 2,5 milljarða d.kr. vegna þeirra á árunum 2013 og 2014.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.