Adam Afriyie, þingmaður Íhaldsflokksins, sem boðaði að hann ætlaði að hnekkja áformum Davids Camerons forsætisráðherra um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina að ESB árið 2017 með því að flytja tillögu um að hún yrði 2014 hefur orðið undir í þingflokki íhaldsmanna. Hann hefur fengið áskorun frá 140 þingmönnum úr eigin flokki um að hætta við áform sín.
Eftir að Afriyie kynnti hugmynd sína í blaðagrein með þeim rökum að almenningur treysti ekki fyrirheiti Camerons um atkvæðagreiðslu árið 2017 brást forsætisráðherrann við og sagðist mundu beita sér gegn slíkri tillögu. Þá sagði þingmaðurinn: „Ég bauð mig ekki fram til að njóta vinsælda.“
Nú hafa 140 af 147 þingmönnum Íhaldsflokksins sem náðu kjöri í fyrsta sinn árið 2010 ritað undir bréf til Afriyies og hvatt hann til að virða andstöðu yfirgnæfandi meirihluta þingmanna við áform hans.
Jacob Rees-Mogg einn þingmannanna sem hlaut kosningu árið 2010 sagði: „Adam er heillandi maður og gáfaður, honum hefur vegnað einstaklega vel í viðskiptaheiminum en í þetta skipti hefur hann lent á vitlausri pólitískri bylgjulengd.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.