Cáritas, sem er kaþólsk hjálparsamtök segir að nú lifi meira en 3 milljónir Spánverja við alvarlega fátækt, sem er skilgreind á þann veg, þegar mánaðarlegar tekjur eru minna en 307 evrur eða rúmlega 50 þúsund íslenzkar krónur. Hlutfallslega hefur aukning orðið úr 3,5% af íbúafjölda Spánar árið 2007 í 6,4% árið 2012.
Hjálparsamtökin segja að ný alda fátæktar og þjóðfélagslegrar útskúfunar hafi riðið yfir í kjölfar aukins aðhalds í ríkisfjármálum. Að auki hafi þeim atvinnuleysingjum fjölgað sem fái ekki lengur neinar bætur.
Talsmaður Cáritas á Spáni sagði í gær að önnur leið væri fær. Hún væri sú að lögfesta ákveðin lágmarkslaun. Skýrsla Cáritas um þetta efni var birt daginn eftir að svissneski bankinn Credit Suisse gaf út nýja skýrslu, sem sýndi að milljónamæringum á Spáni hefur fjölgað um 13% og töldust á síðasta ári vera 402 þúsund.
Fólki, sem leitar til hjálparmiðstöðvar Cáritas á Spáni hefur fjölgað úr 370.251 árið 2007 í 1,3 milljónir 2012.
Frá þessu segir spænska dagblaðið El País.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.