Tæpur helmingur Frakka (46%) telur að Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, yrði best til að leiða andstöðu við François Hollande Frakklandsforseta og Jean-Marc Ayrault, forsætisráðherra sósíalista.
Þetta kemur fram í könnun sem CSA gerði fyrir sjónvarpsstöðina BFMTV á netinu 15. og 16. október 2013 og birt var miðvikudaginn 16. október en alls tóku 957 manns þátt i henni.
Marine Le Pen hefur ótvíræða forystu sem frambjóðandi gegn forystumönnum franskra sósíalista. Næstur henni með 18% er François Fillon, fyrrverandi forsætisráðherra, úr UMP-flokknum (mið-hægri), 13% fær Jean-Luc Mélenchon til vinstri við sósíalista, og þá 13% Jean-François Copé formaður UMP. Samtals fá flokksbræðurnir Fillon og Copé ekki nema 31%.
Þegar kemur að fylgi innan fylkinga vekur ekki sérstaka undrun að meðal vinstri manna fær Jean-Luc Mélechon 29% en François Fillon 22%. Marine Le Pen og Jean-François Copé eru jöfn með 19%. Meðal stuðningsmanna Þjóðfylkingarinnar nýtur Marine Le Pen 93% stuðnings.
Það sem vekur undrun er að á hægri væng stjórnmálanna (utan Þjóðfylkingarinnar) fær Marine Le Pen 32% aðeins meira fylgi en François Fillon (31%) og Jean-François Copé flokksformaður (22%).
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.