Gengið hefur verið frá fríverslunarsamningi milli Evrópusambandsins og Kanada. Viðræður hafa staðið yfir í fjögur ár. Samningurinn verður nú lagður fyrir þjóðþing einstakra ESB-ríkja.
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði að lyktir málsins hefðu verið tryggðar á fundi hans með Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, í Brussel föstudaginn 18. október „Hér er um að ræða metnaðarfullan og víðtækan viðskiptsamning sem skiptir miklu fyrir efnahagslíf ESB,“ sagði í yfirlýsingu frá Barroso.
Hann sagði að samningurinn mundi skipta miklu til að tryggja ESB fótfestu í Norður-Ameríku og hann mundi þannig ýta undir vöxt og fjölgun starfa í Evrópu.
Stephen Harper taldi að mikilvægt og gott skref hefði verið stigið, Kanadamenn hefðu aldrei gert stærri viðskiptasamning. „Þetta er ekki aðeins góður samningur, þetta er frábær samningur,“ sagði forsætisráðherrann.
Viðræður um gerð samningsins hófust árið 2009. Verði hann staðfestur – enn á eftir að jafna nokkur ágreiningsmál – heimilar hann Kanadamönnum að fjárfesta og stunda viðskipti innan ESB. Sem viðskiptaaðili er ESB annar stærsti viðskiptavinur Kanada, viðskiptin eru meiri við næsta nágranna Kanada, Bandaríkin. Í röð viðskiptaþjóða ESB er Kanada nr. 11.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.