Þriðjudagurinn 26. janúar 2021

Róm: Allt að 70 þúsund manns í mótmælagöngu -kveikt í öskutunnum, reykbombum kastað

Mótmæla atvinnuleysi og niðurskurði-4000 lög­reglumenn á vakt


20. október 2013 klukkan 06:00

Til alvarlegra átaka kom í Róm í dag, þegar tugir þúsunda mótmælenda gengu um götur borgarinnar til að mótmæla atvinnuleysi, niðurskurði og miklum verklegum framkvæmdum, sem mótmælendur segja að taki peninga frá velferðarkerfinu. Skipuleggjendur segja að um 70 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum.

Mótmælendur, sem földu andlit sín helltu úr öskutunnum fyrir fram efnahagsráðuneytið og kveiktu í. Þeir notuð barefli til að ráðast á óeirðalögreglu. Þessir sömu mótmælendur, sem blönduðu sér í friðsamlega mótmælagöngu hentu reykbombum, eggjum og öðru að ráðuneytinu og brutu glugga í nærliggjandi banka. Lögreglan handtók 15 mótmælendur, sem lengst gengu. Tveir lögreglumenn særðust.

Skammt frá aftengdi lögregla sprengjuvirki, sem hafði að geyma skotfæri, sem lögregla segir að hefði getað valdið miklu tjóni. Í fréttum Reuters segir að einhverjir mótmælenda hafi haft með sér tjöld og ætlað að hafast við fyrir framan eitt ráðuneytanna á svæðinu sl. nótt.

Margar verzlanir á þeim svæðum, sem mótmælagangan fór um lokuðu. Mótmælendur voru aðallega ungt fólks, sem hélt á borðum þar sem atvinnuleysi var mótmælt, svo og skorti á viðunandi húsnæði og ennfremur var fyrirhugaðri hraðlest til Frakklands mótmælt.

Innflytjendur sem leita hælis á Ítalíu tóku þátt í göngunni og héldu á borðum, þar sem stóð: Lampedusa. Reuters segir að 4000 lögreglumenn hafi verið á vakt.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS