Ný rannsókn sýnir að Danir eru jafn trúaðir nú og fyrir 30 árum. Þetta kemur fram í könnun sem gerð er í mörgum Evrópulöndum á níu ára fresti síðan 1981. Hún gerir vísindamönnum því kleift að fylgjast með afstöðu Dana til trúmála um langt árabil.
Jyllands-Posten segir að myndir úr hálftómum dönskum kirkjum sem birtist reglulega í blöðum eða sjónvarpi gefi ekki rétta mynd af afstöðu Dana til kristindómsins, þeir hafi ekki fjarlægst hann.
Rannsókn vísindamanna við Kaupmannahafnarháskóla sýnir að hefðbundin afstaða Dana til kirkju og kristindóms sé svipuð nú og fyrir 30 árum og raunar hafi þeim fjölgað undanfarin 10 ár sem svari játandi spurningu um hvort þeir sæki kirkju.
Í blaðinu kemur fram að inntakið í afstöðu Dana til trúar og andlegra málefna hafi tekið nokkrum breytingum. Þeir iðki trú sína nú meira einstaklingsbundið til dæmis með hugleiðslu. Þeir sem hafa greint niðurstöðu könnunarinnar segja að nýja aðferðir við andlegar iðkanir fjarlægi fólk ekki frá kirkjunni heldur styrki þetta hvort annað. Það séu fjölmargir sem tengi kristna trúariðkun og hugleiðslu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.