Fimmtudagurinn 21. janúar 2021

Búlgaría: Bann við landakaupum útlendinga framlengt til 2020 - brýtur ESB-aðildarskilmála


23. október 2013 klukkan 14:22

Þing Búlgaríu samþykkti þriðjudaginn 22. október umdeilt frumvarp um bann við sölu á landi til útlendinga fram til 2020. Ríkisstjórn landsins telur að bannið brjóti í bága við ESB-aðildarskilmála ríkisins.

Við aðild að ESB árið 2007 sömdu Búlgarar um sjö ára aðlögunatíma varðandi rétt útlendinga sem ekki eiga fasta búsetu í landinu til að kaupa þar land. Með lögunum sem nú hafa verið samþykkt hefur tíminn verið einhliða framlengdur til 2020.

Þjóðernisflokkurinn Ataka lagði frumvarpið um framlenginguna fram á þingi, íhaldsflokkurinn GERB, sem er í stjórnarandstöðu, studdi það og einnig sósíalistar sem eiga aðild að ríkisstjórn landsins.

Mihail Mikov, forseti þings Búlgaríu, telur að samþykkt frumvarpsins muni spilla ímynd Búlgara í Evrópu og valda þeim vandræðum. Það standist ekki heldur stjórnarskrá landsins.

MRF-flokkur tyrkneska minnihlutans í Búlgaríu segist ætla að kæra málið til stjórnlagadómstóls landsins. Formaður flokksins taldi einnig hættu á refsiaðgerðum af hálfu ESB.

Í búlgörskum fjölmiðlum er sagt að útlendingar geti farið í kringum bannið með því að skrá fyrirtæki í Búlgaríu og eignast land undir merkjum þess.

Ataka-flokkurinn hefur til þessa stutt ríkisstjórnina. Afgreiðsla málsins kann því að háfa áhrif á stöðu hennar á þingi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS